Ævintýri í Árbæ

Samverunámskeið fyrir fjölskyldur

Dagsetningar: 7. - 11. júlí 2025

Tímasetning: 10:00 - 14:00

Einstakt tækifæri til þess að styrkja tengsl innan fjölskyldunar á 5 daga námskeiði sem sameinar leik, nám, náttúruupplifun og skemmtilega samveru.

Verð fyrir 5 daga: 35.800

50% afsláttur fyrir systkin

Hægt er að nýta frístundastyrk

Námskeiðið er fyrir börn fædd 2013 - 2020 og foreldri/forsjáraðila eða aðra úr fjölskyldunni eldri en 16 ára.

Ávextir og vatn / te / kaffi innifaliðÞátttakendur taka með nesti og hægt verður að elda yfir opnu eldstæði

Samverunámskeið fyrir fjölskyldur

Velkomin í kraftmikið og skapandi sumarnámskeið þar sem náttúran, frumkraftar og sköpun eru í forgunni.

Við bjóðum upp á einstakt námskeið sem sameinar leik, nám, náttúruupplifun og samfélag. Á fimm dögum vinnum við með frumkraftana fjóra – eld, vatn, jörð og loft – með fjölbreyttum stöðvum, verkefnum og leikjum sem henta bæði börnum og fullorðnum. Námskeiðið er ætlað börnum á aldrinum 4 ára – 12 ára og foreldrum eða öðrum fjölskyldumeðlim yfir 16 ára. Barn og fullorðinn mæta saman og miðar námskeiðið að því að styrkja tengsl og njóta samveru í náttúrunni.

Dagskrá námskeiðsins

Dagur 1 – Eldur
Kveikjum bál, eldum og lærum um eld og öryggi.

Dagur 2 – Vatn
Leikir með vatn, sápukúlur og prent á efni.

Dagur 3 – Jörð
Ormakassi, moldargarður og leirverk.

Dagur 4 – Loft
Slökun, hengirúm og hreyfingar í vindi.

Dagur 5 – Uppskeruhátíð
Andlitsmálun, dans, leikir og grill.